header image

Image

 Steinhúsið - gistihús og hótelíbúðir á Hólmavík

Steinhúsið er fyrsta steinsteypta húsið á Hólmavík á Ströndum, byggt árið 1911. Búið er að gera húsið upp í gamaldags stíl og er það aftur orðið bæjarprýði á Hólmavík sem er lítið sjávarþorp á Vestfjörðum. Á Hólmavík er bæði stutt í alla helstu þjónustu og óspillta náttúru. Tilvalinn staður til að slappa af eða fara í dagsferðir út frá og koma heim til Steinhússins, sumar, vetur, vor og haust.

 

Steinhúsið skiptist i aðalbyggingu frá árinu 1911 og viðbyggingu frá árinu 1928. Aðalbyggingin, sem er gistihúsið, hefur fimm tveggja manna herbergi á efri hæð með uppbúnum rúmum. Á neðri hæð eru tvær sameiginlegar stofur og vel útbúið eldhús fyrir gesti. Í viðbyggingunni eru tvær tveggja herbergja íbúðir með góðri eldunaraðstöðu og uppbúnu hjónarúmi. Gistihúsið og íbúðirnar er vel útbúið af öllum helstu nútíma þægindum og er frítt þráðlaust internet í húsinu. Móttaka Steinhússins er á Finna Hótel, Borgabraut 4. Gott morgunverðarhlaðborð er einnig þar til húsa fyrir gesti okkar og er opið á milli klukkan 8:00 og 10:00.

 

Steinhúsið er í gamla bænum í sömu götu og Galdrasafnið, Upplýsingamiðstöðin og Café Riis. Aðalbygginguna er einnig hægt að leigja í heilu lagi sem er tilvalið fyrir stórar fjölskyldur og vinahópa. Litlu íbúðirnar eru sérstaklega notalegar og rómantískar fyrir pör sem vilja vera útaf fyrir sig með öll þægindi við hendina. Efri íbúðin er jafnframt fyrirtaks brúðarsvíta og sú neðri hentar mjög vel fyrir barnafjölskyldur.

 

Verið velkomin í Steinhúsið á Hólmavík

Steinhúsið 1911 ehf - Höfðagata 1 - 510 Hólmavík - Sími: 856 1911 -  

 

Who's Online
We have 4 guests online