|
Tillögur að afþreyingu á Hólmavík og nágrenni:
- Beint á móti Steinhúsinu er Galdrasafnið á Ströndum. Þetta er bæði fróðlegt og skemmtilegt safn um galdrahræðslu Íslendinga og ofsóknir vegna hennar á Íslandi á 17. öld. Þar hefur einnig verið opnað kaffihúsið Kaffi Galdur sem býður meðal annars upp á ljúffenga íslenska kjötsúpu með galdraívafi í hádeginu.
- Við hliðina á Galdrasafninu er Handverkshús Hafþórs. Hafþór tálgar úr íslensku birki, listilega vel, íslenska fugla og leggur metnað sinn í að hafa úrvalið sem fjölbreyttast.
- Ef farið er aftur yfir aðal götu bæjarins er komið að elsta húsi Hólmavíkur sem var byggt árið 1897 af norskum kaupmanni. Húsið hefur allt verið gert upp og hýsir nú notalega veitingastaðinn Café Riis.
- Nýleg útisundlaug, heitir pottar og gufa er í nýja hluta bæjarins og er staðsett rétt fyrir ofan tjaldsvæðið. Nýtt, krúttlegt kaffihús með einstaklega skemmtilegt útsýni yfir Steingrímsfjörðinn, Hólmakaffi, er þar einnig í næsta nágrenni.
- Frá Drangsnesi sem er enn minna sjávarþorp við norðanverðan Steingrímsfjörð er hægt að fara í siglingu út í Grímsey. Eyjan er talin stærsta lundabyggð í heimi á einni eyju. Á Drangsnesi er einnig góður veitingastaður með mat úr héraðinu, nýleg sundlaug og heitir pottar í sjávarborðinu, þegar komið er inn í bæinn.
- Dagsferð til Árneshrepps, sem er minnsta bæjarfélag Íslands (50 íbúar) norðan við Hólmavík, mælum við sérstaklega með fyrir náttúruunnendur. Nær ósnortið svæði með mynjar frá stórum atburðum og draumum fyrr á þessari öld sem eru síldarverksmiðjurnar í Djúpavík og við Ingólfsfjörð. Gott er að enda daginn á að skella sér í sund í Krossneslaug. Sundlaugin er staðsett í fjörunni á Krossnesi þar sem heitavatnið rennur í plaströrum frá heitavatnsuppsprettunni, niður hallann og í sundlaugina. Oftast er hún líkari stórum heitum potti en sundlaug.
- Strandahestar er nýtt fyrirtæki á Hólmavík sem býður upp á styttri hestaferðir í nágrenni þorpsins. Margar skemmtilegar ferðir er hægt að fara í nágrenninu. Hringurinn í kringum Þiðriksvallavatn er í sérstöku uppáhaldi. Vatnið er nokkuð stórt í dag eftir virkjun Þverár og sjást leifar af gömlu eyðibýli í botni dalsins.
- Aðeins klukkutíma akstur er frá Hólmavík í fjörðinn Kaldalón í Ísafjarðardjúpi. Kaldalónsjökull skríður þar niður dalinn frá Drangajökli og jökuláin Mórilla rennur um lónið í fjölmörgum síbreytilegum farvegum. Við sunnanvert Kaldalón hefur verið reistur minnisvarði um tónskáldið og lækninn Sigvalda Kaldalóns sem bjó nálægt mynni Kaldalóns. Sigvaldi hreiftst svo að fegurð lónsins að hann tók upp nafn þess.
Tengdar ljósmyndir undir - Myndir Hólmavik og nágrenni
|